Handbolti - ÍR-ÍBV í dag kl. 17:30

17.des.2005  11:50

Strákarnir komnir suður

Í dag, laugardag, leika strákarnir okkur gegn ÍR og fer leikurinn fram í Austurbergi og hefst leikurinn kl. 17:30 að staðartíma. Öruggt er að leikurinn fari fram þar sem strákarnir fóru að hluta til með Herjólfi í dag og hinn hlutinn fór með honum í gær.

Það er full ástæða til að hvetja Eyjamenn á höfuðborgarsvæðinu til að mæta á leikinn og styðja við bakið á okkar drengjum í síðasta leiknum á þessu ári.