Fótbolti - Andri, Bjarni Hólm og Krummi í æfingahóp U-21

13.des.2005  09:54

Fyrsti æfingahópur Lúka Kostic hefur verið valinn, en eins og menn muna eflaust þá var Lúka ráðinn þjálfari U-21 liðs karla hjá KSÍ og er skemmst frá því að segja að í þessum fyrsta hóp sem mun æfa saman 17. og 18. desember nk. eru þrír núverandi leikmenn ÍBV, þeir Andri Ólafsson, Bjarni Hólm Aðalsteinsson og Hrafn Davíðsson. Einnig er í þessum æfingahóp Heimir Snær Guðmundsson FH-ingur með í grætt lítið ÍBV-hjarta eftir sumarið. Það er gaman að sjá til þess að Lúka hefur horft aðeins til okkar hérna í Eyjum í þessum fyrsta æfingahópi sínum og mér segir svo hugur að okkar 3 menn verði þarna áfram - en það á nú eftir að koma í ljós ekki er ég þjálfarinn. - en svona lætur maður nú oft þegar jólahátiðin nálgast.

Áfram ÍBV alltaf alls staðar og um aldur og ævi