Handbolti - Gæsi, takk fyrir samveruna með okkur

08.des.2005  12:55

Í dag verður borin til grafar einn ötullasti stuðningsmaður ÍBV í gegnum árin, Jón Valgarð Guðjónsson (öðru nafni Gæsi). Hann mætti ávallt á handboltaleiki hjá stúlkunum sem og strákunum og studdi liðin vel á pöllunum sem og í öðru starfi. Til minningar um hann báru leikmenn mfl. karla sorgarbönd á síðasta heimaleik liðsins gegn Selfossi.

Vilja leikmenn og stjórn handknattleiksdeildar þakka Gæsa fyrir öll árin sem við áttum saman, um leið og við vottum aðstandendum hans okkar samúð. Við vitum að Gæsi er ekki hættur að styðja við bakið á sínu fólki og hann mun ekki láta sitt eftir liggja við að styðja liðin í vetur þótt að að það verði frá öðru sjónarhorni en áður.