Fótbolti - ÍBV með fulltrúa í úrtakshópum KSÍ.

06.des.2005  14:06

- fimm leikmenn valdir í yngri landsliðin

Á undanförnum helgum hafa fulltrúar ÍBV verið boðaðir á úrtaksæfingar hjá KSÍ. Helgina 26.-27. nóvember voru þær Nína Björk Gísladóttir og Þórhildur Ólafsdóttir fulltrúar ÍBV á úrtaksæfingum fyrir U-17 landslið stúlkna. Um sl. helgi fóru þeir Elías Fannar Stefnisson og Þórarinn Ingi Valdimarsson á úrtaksæfingu fyrir U-17 landslið drengja, og um næstu helgi mun Njáll Aron Hafsteinsson fara á úrtaksæfingar fyrir U-16 landslið drengja.