Handbolti - Fiski- og skransala á föstudaginn

01.des.2005  20:19

Tambóla-frábærir vinningar

Á föstudaginn verður handknattleiksdeildin með fiski- og skransölu í gamla Miðstöðvarhúsinu við Heiðarveg. Verður opið á milli kl. 14:00-19:000. Þar verður mikið úrval af ferskum og frosnum fiskafurðum á mjög góðu verði. Þá verður þar einnig til sölu ýmislegt af leikföngum og skrani á ótrúlega góðu verði. Það er t.d. tilvalið fyrir Jólasveininn að líta við og kynna sér úrvalið. Ekki má gleyma Tambólunni þar sem glæsilegir vinningar verða í boði.