Handbolti - Útileikir í SS bikarnum

16.nóv.2005  14:37

- Strákarnir mæta FH og stelpurnar HK

Í hádeginu í dag var dregið í 8 liða úrslit SS bikarkeppni HSÍ. Karlaliðið fer í Hafnarfjörðinn og leikur þar við FH en leikurinn fer fram 6. eða 7.desember nk. Kvennaliðið mætir nýliðum HK á útivelli og fer sá leikur fram 17. eða 18.janúar.

Hinar viðureigninar í karlaflokkir eru,Fram-Fylkir, HK-Haukar og Þór-Stjarnan, og í kvennaflokki mætast, Valur-Fram, FH-Haukar og Stjarnan-Grótta.