Fótbolti - Formannafundur liða í Landsbankadeild karla 2006

15.nóv.2005  16:25

N.k. fimmtudag, 17. nóv., verður haldinn í hér í Eyjum formannafundur liða í Landsbankadeildinni 2006. Formenn og framkvæmdastjórar liðanna í Landsbankadeildinni munu koma hingað í hádeginu á fimmtudag og hefja svo fundarhöld í kjölfarið á því, á eftir léttum hádegisverði, og munu fundarhöld standa eitthvað fram eftir degi og enda svo með sameiginlegum kvöldverði. Hópurinn mun síðan gista hérna og halda upp á land á föstudagsmorguninn, þann 18. nóvember.
Það eru hin ýmsu mál á dagskrá fundarins en ekki munum við greina frá þeim að svo stöddu aðallega vegna þess að ég er ekki með fundardagskrána við hendina en mér fannst rétt að menn vissu af þessu sér til ánægju og yndisauka.

Áfram ÍBV alltaf alls staðar