Handbolti - 4.flokkur kvenna í handknattleik

09.nóv.2005  15:18

- góður árangur hjá B liði 4.flokks


4.flokkur kvenna b tók þátt í 2.umferð Íslandsmótsins um nýliðna helgi. Leikirnir fóru fram á Seltjarnarnesinu og lék liðið 3 leiki.

Fyrsti leikurinn var gegn Gróttu 3 og vannst hann örugglega 18-7. Næstu andstæðingar voru Grótta 2 og tapaðist sá leikur naumlega 8-11. Síðasti leikurinn var svo við FH og fóru okkar stelpur létt í gegnum þann leik og sigruðu með 12 marka mun 21-9.

Í samtali við fréttapikkara sagði Unnur Sigmarsdóttir, þjálfari stúlknanna, að þetta væru viðunandi úrslit, að vísu hafði eini markmaður liðsins meiðst í upphitun fyrir fyrsta leik og það hefði svo sannarlega sett strik í reikninginn.