Fótbolti - Birkir og Egill í U-19 ára úrtaki

02.nóv.2005  17:23

Þeir kumpánar Birkir Hlynsson og Egill Jóhannsson leikmenn 2. fl. ÍBV hafa verið boðaðir á úrtaksæfingar hjá U-19 ára um komandi helgi en æft verður laugardag og sunnudag undir dyggri stjórn Guðna Kjartanssonar landsliðsþjálfara. Nú er bara að sjá hvort okkar menn fari ekki suður og standi undir nafni og verði því áfram í þessum úrtakshópi. Kristinn Baldursson leikmaður KS sem hefur í hyggju að ganga til liðs við ÍBV er einnig boðaður á þessar æfingar en hann á við meiiðsli að stríða og óvíst hvort hann kemst.

Gangi ykkur vel peyjar.