Handbolti - Ungversk stúlka gegnin í ÍBV

22.okt.2005  12:49

Ungversk stúlka, Nikolett Varga, 26 ára að aldri, er gengin til liðs við ÍBV. Nikolett leikur í skyttustöðunum fyrir utan. Hún hefur undanfarin ár leikið í næst efstu deild í Ungverjalandi og lék nú síðast með Tam-Bau Tamási KC. Við vonum og trúum að hún eigi eftir að styrkja hópinn okkar og hún eykur breidd okkar hóps til muna. Frumraun hennar verður í dag en þá verður hún í hópnum í leiknum gegn Val en hún kom til landsins í gær og hefur því ekki æft neitt með liðinu.