Handbolti - Drætti í happdrætti handknattleiksdeildar frestast

26.sep.2005  09:03

Ákveðið hefur verið að fresta drætti í happdrætti handknattleiksdeildar til þriðjudagskvöld. Þá um kvöldið verður tilkynnt um þau númer sem unnið hafa. Síðan mun þetta verða birt í bæjarblöðunum á fimmtudag.

Þetta er gert þar sem ætlunin er að bjóða öllum þeim er mæta á leik ÍBV og Hauka á morgun þriðjudag í mfl. kvenna og eru orðin 18 ára frían happdrættismiða.

Við hvetjum því öll til að mæta á leikinn á morgun og næla sér vonandi í vinningsmiða í leiðinni.