Fótbolti - 4.flokkur kvenna í úrslitaleik Íslandsmótsins

02.sep.2005  13:09

- Spila gegn Breiðablik á laugardag kl 12:00 á Varmárvelli í Mosfellsbæ

Stelpurnar í 4.flokki kvenna hafa heldur betur verið að gera það gott í sumar. Þær spiluðu um síðustu helgi í undanúrslitum Íslandsmótsins en þau fara fram í tveimur þriggja liða riðlum þar sem sigurvegari hvors riðils spila svo hreinan úrslitaleik. Stelpurnar gerðu sér lítið fyrir og tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum með því að sigra Þrótt Reykjavík 6-0 og Þór frá Akureyri 6-1.

Þær spila því á laugardag hreinan úrslitaleik gegn Breiðabliki en leikurinn fer fram á Varmárvelli í Mosfellsbæ. Hann hefst klukkan 12:00 og væri gaman ef fólk myndi kíkja á völlinn og hvetja stelpurnar til dáða. Leikurinn verður án efa mikil skemmtun því þarna eigast við tvö bestu lið landsins í þessum aldursflokki.

Við óskum stelpunum góðs gengis og ÁFRAM ÍBV !!