Handbolti - 6 leikmenn frá ÍBV í æfingahópi U-90 landsliði kvenna

30.ágú.2005  10:58

Sex leikmenn frá ÍBV voru valdar í æfingahóp U-90 landsliðs kvenna, en æfingar hafa verið hjá þessum hóp í sumar. Nú á haustdögum verður síðan valin hópur sem mun æfa saman í vetur. Fimm að þessum leikmönnum koma úr sigursæla 5.flokki sem að stóð sig mjög vel síðasta vetur og varð t.d Íslandsmeistari. Stúlkurnar sex sem hafa verið í þessum æfingahóp eru: Andrea Káradóttir, Dröfn Haraldsdóttir, Elísa Viðarsdóttir, Eva María Káradóttir, Kristrún Ósk Hlynsdóttir, en þær eru allar úr áðurnefnda 5.flokki og Nína Björk Gísladóttir. Nína Björk Gísladóttir

Það er vægast sagt glæsilegur árangur að eiga svona marga fulltrúa í þessum æfingahóp og voandi halda stúlkurnar áfram á sömu braut.