Handbolti - Handboltavertíðin að byrja!

23.ágú.2005  13:27

Á morgun, miðvikudag, hefst Reykjavík OPEN í handknattleik. Bæði karla og kvennalið ÍBV mun taka þátt í mótinu og hefja liðin leik á fimmtudag, en mótið stendur til laugardagsins 27.ágúst.

Leikir karlaliðsins:

Fimmtudagur: 20:00 Grótta - ÍBV

Föstudagur: 15:00 ÍBV - Fram

Seinnipart föstudags og laugardagsmorgun er svo krossspil en leikir um sæti hefjast kl. 14:00 á laugardeginum. Allir leikir karlaliðsins fara fram í Austurbergi.

Leikir kvennaliðsins:

Fimmtudagur: 19:00 ÍBV - Stjarnan

21:00 ÍBV - HK

Föstudagur: 16:00 Víkingur - ÍBV

Á föstudagskvöldið eru undanúrslitaleikirnir og hefst sá fyrri kl. 19:00 og seinni kl.20:00, en þessir leikir sem og leikirnir í riðlinum fara fram í Íþróttamiðstöðinni í Grafarvogi. Leikir um sæti hefjast kl.14:00 í Austurbergi á laugardag.

Leikir um sæti á laugardag.

kl. 14:00 3.sæti kvenna

kl. 16:00 3.sæti karla

kl. 18:00 1.sæti kvenna

kl. 20:00 1.sæti karla