Handbolti - Tveir tékkar komnir í ÍBV

16.ágú.2005  15:12

Til liðs við karlaliðið í handboltanum hafa gengið tveir leikmenn frá Tékklandi. Þeir heita Michal Dostalík sem er 26 ára og er línumaður og Jan Vtípil sem er 23 ára og er hægri hornamaður. Þeir léku báðir á síðasta ári með liðinu Házená Brno í Tékklandi. Þetta eru ferskir og baráttuglaðir drengir sem eflaust eiga eftir að styrkja okkar hóp í þeirri baráttu sem framundan er í vetur.

Við bjóðum þá velkomna í ÍBV og vonum að þeir eigi eftir að eiga ánægjulegt tímabil með okkur.