Fótbolti - Djöfullinn danskur.....

20.júl.2005  14:32

Rune Lind á leið til ÍBV

Núna er verið að ganga frá félagaskiptum Rune Lind, fæddur 03.04 1985, yfir í ÍBV frá Esbjerg í Danmörku. Rune hefur löngum þótti efnilegur í fótbolta og á að baki 24 landsleiki með U-17 og U-18 ára landsliðum Danmerkur og skoraði í þeim leikjum 4 mörk. Þarna er um að ræða alhliðaleikmann sem var í meistaraliði Esbjerg árið 2004 í dönsku U-21 keppninni . Rune þykir tæknilega góður leikmaður og á án efa eftir að styrkja okkur í þeirri baráttu sem framundan er. Við bjóðum peyjann velkominn til leiks.

Áfram ÍBV alltaf alls staðar