Fótbolti - Keflvíkingar sóttir heim í kvöld

18.júl.2005  07:45

Í kvöld kl. 19:15 leika Eyjamenn gegn Keflvíkingum á heimavelli þeirra Suðurnesjamanna. Óvæntur sigur Þróttar á Fylki í gær setti okkur enn og aftur í fallsæti og nú er að klóra sig þaðan með því að vinna fyrsta sigurinn á útivelli. Þar hefur ekki ennþá fengist stig.

ÍBV þótti ekki eiga góðan leik gegn B36 s.l. fimmtudag og hljóta strákarnir að vilja efla andann og klára þetta verkefni í kvöld með prýði. Binda strákarnir vonir við að sjá sem flesta stuðningsmenn ÍBV mæta í Keflavíkina eins og styðja liðið til sigurs.