Fótbolti - Uppboð á treyju Hemma - hæsta boð nú 50.000

07.júl.2005  16:36

Nú þegar við vonumst eftir auknum stuðningi við meistaraflokkslið karla hjá ÍBV, hafa hæstbjóðendur frá herrakvöldi ÍBV, ákveðið að gefa knattspyrnudeild ÍBV treyju Hermanns Hreiðarssonar, sem árituð er af öllu liði Charlton Athletic, og bjóða hana upp aftur hér á www.ibv.is. Hægt er að bjóða í treyjuna með því að senda tölvupóst með nafni og símanúmeri á ibvpostur@hotmail.com .

Treyjan var slegin á 35.000 krónur á herrakvöldi ÍBV og er vonast eftir því að hún fari ekki fyrir minni fjárhæð í þetta skiptið, og helst miklu hærri, en hægt verður að bjóða í treyjuna til hádegis 24. júlí n.k. en þá koma Íslandsmeistarar FH í heimsókn á Hásteinsvöll kl. 16:00.

Vonast er eftir þátttöku fyrirtækja og stuðningsaðila í þessu uppboði. Oft hefur verið þörf á góðum stuðningi, en nú er nauðsyn.

Lágmarksboð í treyjuna er kr. 15.000

Áfram ÍBV.