Fótbolti - Magnús Már Lúðvíksson hættur hjá ÍBV

23.jún.2005  10:01

Magnús Már Lúðvíksson, leikmaður meistaraflokks ÍBV, hefur tilkynnt félaginu að hann sé hættur að leika fyrir þess hönd. Sjónarmið félagsins og leikmannsins munu ekki hafa náð saman varðandi þann þátt samkomulags er lítur að atvinnumálum Magnúsar í sumar.

Um leið og við hörmum afstöðu Magnúsar, viljum við Eyjamenn þakka Magnúsi fyrir framlag hans fyrir hönd ÍBV frá því hann kom til félagsins og óskum honum velfarnaðar í framtíðinni.