Fótbolti - Adólf framlengir til 2007

22.jún.2005  09:20

Hinn bráðefnilegi Adólf Sigurjónsson(f. 1985), sem hefur verið í byrjunarliði ÍBV í s.l. 3 leikjum, hefur ákveðið að framlengja samning sinn til 2007. Adólf vakti athygli með vasklegri framgöngu í leik ÍBV gegn KR fyrir skömmu og nýtti hann þar langþráð tækifæri í byrjunarliði ÍBV.

Við óskum Adólf til hamingju með samninginn.