Fótbolti - Súpufundur stuðningsmannaklúbbsins kl 12 á sunnudag

20.maí.2005  15:45

Stuðningsmannaklúbbur karlaliðs ÍBV mun hittast í Týsheimilin n.k. sunnudag kl. 12 og þar munu verða afhentar sumargjafir klúbbsins til stuðningsmanna. Hingað til hafa þær ekki verið af verri endanum hjá Guðnýju Óskars og co.

Knattspyrnuráðsmenn munu einhverjir vera þarna viðstaddir ásamt því sem þjálfari og nokkrir leikmenn munu líta við.

Þetta er tilvalið tækifæri til að gerast nýjir meðlimir í stuðningsmannakúbbi ÍBV, sem og að þjappa sér saman fyrir leikinn sem hefst kl. 14.

Áfram ÍBV !