Handbolti - Björgvin Páll Gústavsson í ÍBV

20.maí.2005  09:27

Björgvin Páll Gústavsson markvörður sem leikið hefur með HK hefur gengið til liðs við ÍBV. Hann er einn efnilegasti markvörður landsins og hefur m.a. leikið í öllum yngri landsliðunum og er byrjaður að banka á dyr A-landsliðsins og hefur leikið nú þegar 11 landsleiki með því. Hann er m.a. að fara að keppa um helgina með A-landsliðinu gegn Færeyingum.

Við lýsum yfir mikilli ánægju með að hafa fengið Björgvin til liðs við okkur og væntum til mikils af honum á komandi tímabili.