Fótbolti - Skrif frá Hásteinsvelli í góðum höndum

18.maí.2005  14:12

Rannsóknarlögreglumaðurinn og fyrrum knattspyrnuráðsmaðurinn Tryggvi Kristinn Ólafsson og endurskoðandinn Hafsteinn Gunnarsson munu skrifa um heimaleiki ÍBV í sumar fyrir www.ibv.is og www.fotbolti.net. Tryggva þarf vart að kynna fyrir netverjum en hann hefur skilað frábærum pistlum frá leikjum ÍBV undanfarin 2 sumur og hafa þeir strákar á www.fotbolti.net gefið pistlum hans hæstu einkunn, enda skrifuð af nákvæmni rannsóknarlögreglumannsins. Engu er sleppt sem skiptir máli. Endurskoðandinn Hafsteinn Gunnarsson hefur svo bæst í hópinn og mun skrifa um nokkra leiki og er ljóst að þar verður ekki neitt látið á prent nema að vel athuguðu máli og endurskoðað í þaula.

Nú er leitað að skrifara fyrir útileikina og eru áhugasamir endilega hvattir til að hafa samband við undirritaðan. (s. 861-1655)