Fótbolti - Hemmi framlengir hjá Charlton

17.maí.2005  12:44

Hermann Hreiðarsson, sem nú er orðinn 30 ára, hefur framlengt samning sinn við Charlton Athletic til júní 2007. Hann missti af nokkrum síðustu leikjum Charlton á nýliðnu tímabili vegna hnémeiðsla. Hermann fór til Charlton frá Ipswich í mars 2003 og þykir meðal allra vinsælustu leikmanna á The Valley. "Við erum í skýjunum yfir því að hafa fengið Hermann til að framlengja samning sinn við félagið um ár til viðbótar" segir Alan Curbishley, framkvæmdastjóri Charlton.

Heimild: www.teamtalk.com