Fótbolti - Hverju orði sannara!

14.maí.2005  10:15
Breytingarnar í þjóðfélaginu hafa verið miklar síðustu 2 áratugi og hefur knattspyrnuráð ÍBV ekki farið varhluta af þeim breytingum sem átt hafa sér stað. En ein breytingin átti sér stað í gærdag þegar Sveinn Bernódus Sveinsson gekk til liðs við knattspyrnuráð ÍBV. Svenni sem er þekktur fyrir sínar góðu sögur um menn og málefni varð þess valdandi að ekki verður náð í fleiri leikmenn fyrir tímabilið þar sem ráðið varð að fjárfesta í lygamæli svo ráðsfundir yrðu nú á eðlilegum nótum.
Sveinn er eins og flestir vita þekktur knattspyrnuiðkun sína í gegnum tíðina auk þess sem hann hefur fengist við þjálfun bæði innanbæjar sem og á Íslandi.
Við bjóðum Svenna velkominn til starfa hjá ÍBV.