Fótbolti - Lewis og Andrew klárir í slaginn

13.maí.2005  18:13

Nú er það orðið klárt að þeir herbergisfélagar Lewis Dodds og Andrew Sam eru komnir með leikheimild og verða því klárir í fyrsta leik gegn Fram á Laugardalsvelli kl. 17.00 á mánudag. Ekki eru allir heilir því Andri, Einar Hlöðver, Atli, Jeffsy og James Robinson eiga allir við meiðsli að stríða og ekki alveg víst hvernig þeir púsla sér saman fyrir mánudag og í raun alls óvíst með þá flesta og þá mun reyna á hina strákana og það að þeir fái góðan stuðning frá okkar öfluga stuðningsmannaliði á fastalandinu. Liðið er nú allt komið til Reyjavíkur og vegna meiðslanna er hópurinn óvenju stór sem fór í bæinn, eða 23 strákar.

Áfram ÍBV - alltaf alls staðar