Handbolti - ÍSLANDSMEISTARAR!

13.maí.2005  11:32

5.flokkur kvenna í handknattleik eru Íslandsmeistarar 2005. Eftir að starfsmaður HSÍ hafði farið yfir mótsgögn úr síðustu umferð Íslandsmótsins kom það í ljós að ÍBV endaði í 1.sæti Íslandsmótsins. ÍBV hafði verið tjáð að liðið hafði endað í 2.sæti og voru leikmenn og þjálfari að vonum frekar svekktar, en þegar að öll mótsgögn höfðu verið skoðuð aftur kom í ljós að mótshaldarar höfðu gert mistök. ÍBV eru semsagt Íslandsmeistarar og einnig Deildarmeistarar. Er þetta frábær árangur hjá stelpunum og óskum við þeim innilega til hamingju með þennan árangur.