Handbolti - Eru einhverjir Eyjamenn á höfuðborgarsvæðinu?

21.apr.2005  01:02
Við þurfum ykkar stuðning í kvöld.
Í kvöld kl. 19:40 leika strákarnir okkar gegn ÍR í öðrum leik sínum í undanúrslitum DHL deildarinnar.  Með sigri geta strákarnir tryggt sér sæti í úrslitunum í fyrsta skipti í sögu karlahandbolta ÍBV.  Við þurfum að muna að það voru stuðningsmenn ÍBV sem áttu einna stærstan þátt í sigri okkar drengja á þriðjudaginn.  Nú er spurning hvort að Eyjamenn á höfuðborgarsvæðinu ætli að láta sitt eftir liggja með það að styðja strákanna til sigurs. 
 
Við köllum okkur Eyjamenn, sýnum að svo sé og fjölmennum í Austurbergið í kvöld og styðjum strákanna til sigurs.