Fótbolti - Tap gegn Valsmönnum, en gæti þó breyst 3-0 sigur

17.apr.2005  00:46
 
Strákarnir spiluðu í "góða" veðrinu í Reykjavík í dag við Valsmenn i deidarbikarnum. Valsmenn náðu að knýja framsigur í seinni hálfleik en svo gæti þó farið að Okkur yrði dæmdur sigur því samkvæmt okkar kokkabókum þá átti Bjarni Ólafur Eiríksson leikmaður Vals að vera í leikbanni í þessum leik vegna 3ja gulra spjalda.
Þetta skýrist þó ekki fyrr en á mánudaginn þegar starfsmenn KSI koma til vinnu að loknu helgastússi. Ef okkur verður dæmdur sigurinn í þessum leik þá erum við nánast komnir í 8 liða úrslit þetta árið, þó svo að þaðsé ekki alveg öruggt.