Fótbolti - Sýnarmenn hættir að sýnast

14.apr.2005  16:04
Grindavík - ÍBV 30. maí í beinni
Nú skal blásið til sóknar og Sýn byrjar umfjöllun sína um Landsbankadeildina 2005 af miklum krafti. Búið er að ákveða fyrstu leikina sem sendir verða út í beinni og læt ég þá fylgja hér á eftir. Ánægjulegt er að leikur okkar manna í Grindavík verður í beinni, ekki bara til Eyja heldur verður honum þrumað yfir landslýð af fullum krafti. Verð ég að segja að mér þykir það nokkuð gott hjá Sýnarmönnum að senda eigi út 6 leiki í beinni fyrstu 15 daga Íslandsmótsins. Svo er bara að vona að við fáum nokkra leiki með okkar mönnum í beinni í sumar.
 
16. maí Keflavík - FH
17. maí Fylkir - KR
23. maí Valur - ÍA
27. maí Fram - Þróttur
29. maí KR - FH
30. maí Grindavík - ÍBV