Fótbolti - Enn skorar Steingrímur

20.mar.2005  12:55

en nú dugði það ekki til

Eyjamenn urðu að lúta í gervigras í Fífunni í gær gegn sprækum Skagamönnum leikurinn endaði 3-2 fyrir Skagamenn eftir að Eyjamenn höfðu haft forystu í hálfleik 2-1. Það voru þeir Steingrímur og Magnús Már sem skoruðu mörkin fyrir okkar menn. Eyjaliðið byrjaði leikinn betur og höfðu nokkra yfirburði framan af en hægt og rólega komust lærisveinar Óla Þórðar inn í leikinn og náðu að tryggja sér sigur í seinni hálfleik. Náði annars ekki almennilega í skottið á þjálfaranum í gærkvöldi til að fá betri skýrslu og minn vanalegi heimildarmaður Jón Óskar var hérna á skerinu fagra..

Byrjunarlið ÍBV var þannig skipað:

Birkir

Adólf – Bjarni Hólm – Palli – Bjarni Geir

Egill Yo - Pétur – Jeffsy – Magnús Már – Bjarni Rúnar

Steingrímur

Anton Bjarna kom inn fyrir Bjarna Geir í fyrrihálfleik þar sem Bjarni meiddist

Elvar Aron  (sonur Bödda í Godthaab) kom inn fyrir Egil Yo um miðjan seinni hálfleik

Einar Kristinn (Kára Þorleifs) kom svo inná fyrir Steingrím..

Hrafn og Hilmar Björns. (Ella) komu ekki við sögu í leiknum.

 

Næsti leikur í deildarbikarnum er gegn liði Breiðabliks þann 3. apríl