Handbolti - Mikilvægur leikur hjá stelpunum í kvöld

09.mar.2005  13:26
FH kemur í heimsókn.
Stelpurnar okkar leika gegn FH í kvöld kl. 19:15 og er þessi leikur gríðarlega mikilvægur fyrir okkar stúlkur þar sem sigur þarf að vinnast til að við eigum möguleika á að vinna Deildarmeistaratitlinn.  Eyjamenn þurfa því að styðja við bakið á stúlkunum og mæta í höllina og hvetja þær til sigurs.  Sýnum þeim að við stöndum fast við bakið á þeim með því að fjölmenna.
 
Þess má geta að Bjarný dóttir Varða og Gunnu leikur með FH og verður gaman að fá hana og stöllur hennar í heimsókn í kvöld.