Handbolti - Herrakvöld handknattleiksdeildar ÍBV

09.mar.2005  13:44

Sr. Gunnar Sigurjónsson, sterkasti prestur í heimi verður ræðumaður á Herrakvöldi ÍBV á laugardaginn. Herrakvöldið gæti orðið það stærsta sem haldið hefur verið í Vestmannaeyjum, en nú hafa selst yfir 150 miðar.

Meðal gesta verða nemendur frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík, flest allir iðnaðarmenn í Vestmannaeyjuog fjöldin allur af skemmtilegum fírum. Margt verður til skemmtunar bæði á léttu nótunum en einnig alvarlegri atriði eins og boltaleikni Skallagengisins og Gettu betur milli Stýrimannaskólans og skipstjóra í Ve. Ef þú hefur áhuga á að mæta hafðu samband við Magnús Bragason í síma 481-2458