Handbolti - Strákarnir halda norður í dag og leika við Þór

08.mar.2005  01:21
Í dag, þriðjudag, munu strákarnir okkar halda norður til að leika gegn Þór.  Leikurinn hefst kl. 19:15 og full ástæða til að hvetja Eyjamenn á höfuðstað Norðurlands að láta sjá sig og styðja við bakið á drengjunum.  Við eigum harma að hefna gegn Þórsurum eftir að þeir lögðu okkur að velli fyrir um hálfum mánuði síðan. 
 
Úrslit þessa leiks segja til um það hvort að við munum verða í neðri eða efri hluta deildarinnar.  Það kemur því ekkert annað en sigur til greina í þessum leik fyrir okkar drengi.  Siggi Braga og drengirnir hans verða að halda áfram á sömu braut og í síðustu 2 leikjum, þ.e.a.s. vera með viljann og báráttuna í lagi sem skilar sér í góðri vörn, frábærri markvörslu og skynsamri sókn.