Handbolti - Stórleikur í dag, laugardag, kl. 15:00

05.mar.2005  02:29
Það verður sannkallaður stórleikur í dag kl. 15:00 er Haukar koma í heimsókn og etja kappi við drengina okkar.  Haukar eru núverandi Íslandsmeistarar og efstir í DHL deildinni þessa stundina.  Strákarnir okkar þurfa því að ná góðum leik til að leggja Hauka að velli.  Stuðningur áhorfenda skiptir gríðarlega miklu máli og því vonandi að Eyjamenn sjái sér fært að mæta og styðja við bakið á drengjunum.