Handbolti - Strákarnir mæta TOPPLIÐINU, HK. í kvöld

02.mar.2005  01:43
Strákarnir okkar mæta toppliði HK í kvöld kl. 19:15.  Full ástæða er til að hvetja Eyjamenn til að mæta á leikinn þar sem strákarnir þurfa á öllum okkar stuðningi að halda til að komast í úrslitakeppnina og ná þar góðu sæti.  HK er eitt sterkasta liðið í deildinni og er sem stendur í efsta sæti deildarinnar þannig að ljóst er að strákanna bíður erfitt verkefni fyrir höndum.
 
Samúel Árnason mætir hér sínum gömlu félögum í fyrsta sinn síðan hann gekk til liðs við ÍBV og við vitum að hann ætlar að gera sitt til að leggja HK að velli.
 
Við vonum að Eyjamenn fjölmenni í höllina í kvöld og styðji þannig við bakið á sínum drengjum.