Handbolti - Strákarnir mæta Þór í kvöld kl. 19:15

23.feb.2005  01:49
Full ástæða er til að hvetja Eyjamenn til að mæta í höllina í kvöld og styðja við bakið á strákunum er þeir mæta Þór frá Akureyri kl. 19:15.
 
Það er vonandi að Eyjamenn sýni stuðning sinn í verki og geti litið upp frá sjónvarpinu eina kvöldstund og sýnt hve vel við styðjum liðið okkar.  Strákarnir þurfa allan okkar stuðning í kvöld til að ná að leggja hið sterka lið Þórs að velli.
 
Eyjamaðurinn Sindri Haraldsson leikur með Þór og hefur hann verið að spila vel með norðanmönnum í vetur og mun eflaust gefa sig 110% í leikinn gegn sínum gömlu félögum.