Handbolti - ÍBV-Víkingur í kvöld kl. 19:15

15.feb.2005  01:24
Stelpurnar okkar leika gegn Víkingi í kvöld kl. 19:15.  Við hvetjum Eyjamenn til að mæta á leikinn og styðja við bakið á stelpunum í þessum leik.  Enn er von um að vinna Deildarmeistaratitlinn en til þess að svo verði þurfum við að vinna þá leiki sem eftir eru og Haukar aðeins að misstíga sig.
 
Víkingsstelpur hafa verið upp og ofan í vetur átt góða leiki á milli þess sem þær hafa stundum dottið niður þess á milli.  Það eru því sýnd veiði en ekki gefin og þurfa okkar stelpur að leggja sig 110% fram til að innbyrða sigur í þessum leik.