Handbolti - Þrír leikir í dag í handbolta kvenna

15.jan.2005  04:12
Í dag kl. 14:00 mæta stelpurnar okkar í mfl. hinu öfluga liði Stjörnunnar.  Hér verður um mjög erfiðan leik fyrir okkar stúlkur að ræða og því nauðsynlegt fyrir stelpurnar að Eyjamenn fjölmenni í höllina og hvetji stelpurnar til sigurs.
 
Stjörnustúlkur hafa verið að spila vel í vetur og gerðu góða hluti í Evrópukeppninni um síðustu helgi og virðast í mjög góðu formi.
 
Kl. 11:00 leika stelpurnar í 4. flokki kvenna gegn Fylki og kl. 17:00 leikur unglingaflokkur kvenna einnig gegn Fylki.  Hér leika ungu og efnilegu stelpurnar okkar og hvetjum við því Eyjamenn til að mæta á þessa leiki og styðja við bakið á stúlkunum.